Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 19. janúar 2021 23:30
Aksentije Milisic
Maddison: Vil að fólk tali um mig
Mynd: Getty Images
James Maddison, leikmaður Leicester, átti flottan leik í kvöld þegar liðið vann góða sigur á Chelsea. Leicester er nú komið í efsta sæti deildarinnar.

Maddison skoraði annað mark Leicester og hann var mjög sáttur með spilamennsku liðsins í kvöld.

„Við erum efstir en við megum ekki láta það trufla okkur. Við tökum alltaf einn leik í einu og njótum þess að vera efstir, þó það verði ekki nema í 24 klukkustundir. Við erum ekki á toppnum fyrir slysni," sagði Maddison.

„Ég er að reyna bæta mig. Eftir leikinn gegn Sheffield sagði Carragher að ég verð að skila inn betri tölfræði ef ég vil láta fólk tala um mig varðandi landsliðið og fleira. Ég fékk mér sæti með stjóranum og við fórum yfir það hvað ég get gert til að skora fleiri mörk og staðsetja mig rétt."

„Ég keyrði inn fyrir vörnina þeirra í dag. Ég vil skora fleiri mörk og ég vil að fólk tali um mig."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner