Santi Cazorla segir að hann eigi einu verki eftir ólokið á Emirates vellinum. Það sé að kveðja stuðningsmenn Arsenal.
Cazorla er 35 ára og yfirgaf Arsenal eftir sex ára veru árið 2018 en hann hafði verið fjarverandi í tvö ár vegna alvarlegra ökklameiðsla.
Hann hefur náð ótrúlegum bata eftir rosalega erfið meiðsli. Hann komst á gott skrið hjá Villarreal og náði að endurheimta sæti sitt í spænska landsliðinu.

„Það var pirrandi að geta ekki kvatt félagið almennilega, félag sem kom svo ótrúlega vel fram við mig," segir Cazorla.
„Ég á það eftir að segja bless með almennilegum hætti. Ég verð ævinlega þakklátur félaginu og stuðningsmenn fyrir það hvernig komið hefur verið fram við mig."
Athugasemdir