Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. febrúar 2021 15:55
Magnús Már Einarsson
Sandra María ólétt
Mynd: Mirko Kappes
Sandra María Jessen, leikmaður Bayer Leverkusen, er ólétt en hún tilkynnti þetta á Facebook í dag.

Hin 26 ára gamla Sandra hefur spilað átta leiki með Leverkusen í þýsku Bundesligunni á þessu tímabili.

Sandra var ekki með í fyrsta leik liðsins eftir vetrarfrí um síðustu helgi og nú er ljóst að hún verður fjarverandi út þetta ár.

Sandra er á sínu þriðja tímabili hjá Leverkusen en hún var áður í lykilhlutverki með Þór/KA.

Á ferli sínum hefur Sandra skorað sex mörk í 31 leik með íslenska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner