Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. mars 2021 09:56
Elvar Geir Magnússon
Vilja Messi eða Bruno í Fylki og söfnuðu í tombólu
Frá vinstri Adam Elí Ómarsson, Matthías Rúnar Þórðarson og Óliver Hrafn Gunnlaugsson
Frá vinstri Adam Elí Ómarsson, Matthías Rúnar Þórðarson og Óliver Hrafn Gunnlaugsson
Mynd: Fylkir
Þeir Adam Elí Ómarsson, Matthías Rúnar Þórðarson og Óliver Hrafn Gunnlaugsson komu færandi hendi í vikunni og færðu knattspyrnudeild Fylkis peninga að gjöf sem þeir söfnuðu í tombólu.

Þeir félagar vildu koma því á framfæri að nota ætti peninginn til að kaupa góða leikmenn til að styrkja liðið fyrir sumarið og nefndu sérstaklega Lionel Messi og Bruno Fernandes.

„Það er öruggt að þessir peningar munu koma sér vel í því ástandi sem nú ríkir og verða þeir notaðir til að styrkja leikmannahópinn þó að fyrrnefndir leikmenn séu líklega ekki að koma. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn og greinilegt að hér er um sanna félagsmenn að ræða," segir á heimasíðu Fylkis.

Fylki var spáð 6. sæti í Pepsi Max-deildinni í ótímabærri spá útvarpsþáttarins Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner