Fotbolti.net
19.05.22 - 16:00
Ástríðan

Sjáðu rauða spjaldið sem Oskar Wasilewski fékk gegn KFS

Óskar í leik með Aftureldingu í fyrra.

Óskar í leik með Aftureldingu í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í upphafi seinni hálfleik á leik Kára og KFS fékk Oskar Wasilewski beint rautt spjald fyrir að hrinda leikmanni KFS við varamannabekk liðsins.

Oskar og Frans Sigurðsson voru í kapphlaupi um hvor yrði fyrstur í boltann. Atvikið má sjá í spilaranum hér að neðan en það var rætt í Ástríðunni. Leikmenn Kára voru ekki sáttir við niðurstöðuna, að reka Oskar af velli, og hefðu viljað sjá eitthvað dæmt á leikmann Kára.
„Oskar fær beint rautt spjald á 47. mínútu. Leikmaður KFS ýtir aðeins í Oskar, það er smá barningur og Oskar snýr sér svo við og hrindir honum. Hann fór fullauðveldlega niður, en þú mátt samt sem áður ekki gera þetta," sagði Sverrir Mar Smárason.

„Þetta er alltaf rautt spjald. Hann hrindir honum bara niður fyrir framan bekkinn. Alltaf rautt er það ekki?" spurði Óskar Smári Haraldsson.

Liðin leika í 3. deild fór fram í Akraneshöllinni um síðustu helgi. Kári leikinn 3-0.

Ástríðan - 2. umferð - Dalvík og Víðir byrja vel og Njarðvík að pakka saman 2. deildinni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.