Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
banner
   sun 19. maí 2024 14:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gríðarlegt áfall fyrir Arsenal - „Þeirra aðal maður undanfarin ár"
Mynd: EPA

Bukayo Saka leikmaður Arsenal er ekki í leikmannahópi liðsins þegar liðið fær Everton í heimsókn í lokaumferðinni.


Þetta er gríðarlegt áfall fyrir liðið þar sem hann hefur verið frábær en Arsenal er í harðri titilbaráttu gegn Man City. Liðið er tveimur stigum á eftir City.

Greint hefur verið frá því að smávægileg vöðvameiðsli séu að hrjá enska kantmanninn sem hefur skorað 16 mörk og lagt upp níu í deildinni á þessari leiktíð.

„Þetta eru risafréttir. Martineelli er frábær en Saka hefur verið þeirra aðal maður undanfarin ár. Ég sé þetta ekki hafa áhrif á úrslitin samt sem áður," sagði Rio Ferdinand á TNT Sport.


Athugasemdir
banner
banner
banner