Spánn og Pólland eigast við í loka leik dagsins á EM.
Rio Ferdinand einn spekinga BBC sagðist hissa á því að Thiago miðjumaður Liverpol og spænska landsliðsins væri ekki í byrjunarliðinu.
„Ég er hissa. Á síðustu leiktíðinni sinni hjá Bayern Munich var hann talinn einn af, ef ekki besti miðjumaður í heiminum. Það er ekki spurning að hann er mjög hæfileikaríkur."
Thiago var mjög lengi í gang á sínu fyrsta tíambili hjá Liverpool en honum tókst að skora sitt fyrsta og eina mark fyrir liðið undir lok tímabilsins.
Hann kom inná sem varamaður hjá Spánverjum gegn Svíum í fyrsta leik EM þegar um 25. mínútur voru eftir af leiknum.
Athugasemdir