Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
   mið 19. júní 2024 19:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yfirlýsing frá Vestra: Ekkert svigrúm fyrir kynþáttafordómum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri hefur gefið frá sér yfirlýsingu eftir atvik sem átti sér stað í leik liðsins gegn Fylki á Wurth vellinum í gær.


Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra greindi frá því í viðtali við Stöð2sport/Vísi eftir leikinn að rasísk ummæli hafi fallið í garð sinna leikmanna.

Í yfirlýsingunnni kemur fram að um er að ræða einn leikmann úr hvoru liði. Vestri greinir frá því að málið sé komið á borð KSÍ og að félagið styðji við bakið á sínum leikmanni.

Yfirlýsing Vestra í heild sinni:

Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Vestra vegna atviks í leik Fylkis og Vestra þriðjudaginn 18.júní s.l.

Knattspyrnudeild Vestra harmar að leikmaður liðsins hafi orðið fyrir kynþáttafordómum í leik liðsins á móti Fylki, þegar leikmaður Fylkis lætur rasísk orð í garð leikmanns Vestra falla. Erindið hefur verið sent á borð Knattspyrnusambands Íslands. Knattspyrnudeild Vestra stendur þétt við bakið á leikmanni liðsins og styður hans eins vel og mögulegt er. 

Hjá Vestra er ekkert svigrúm fyrir kynþáttfordómum af neinu tagi. Slík ummæli eiga hvorki heima innan knattspyrnuhreyfingarinnar né annar staðar.

Hjá knattspyrnudeild Vestra starfa og iðka einstaklingar á öllum aldri, af öllum kynjum og af hinum ýmsu þjóðernum. Hjá félaginu eru öll velkomin. 

Félagið biður fjölmiðla að gefa aðilum málsins svigrúm því eins og gefur að skilja geta atvik sem þessi haft djúpstæð áhrif á þá er málið varðar. 

Félagið mun ekki tjá sig frekar um málavexti.

Knattspyrnudeild Vestra


Athugasemdir
banner
banner