Gústi Gylfa: Það fór dálítið um mann
Auglýsing

Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu er kátur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Það er stemming í klefanum. Það er fagnað auðvitað, við erum að spila á móti einu sterkasta liðinu í deildinni og það er frábært að fá þrjú stig." voru fyrstu viðbrögð Ágústar Gylfasonar þjálfara Gróttu.
„Mér fannst þetta hörku leikur og vel spilaður leikur, það var kraftur í þessu. Kórdrengir gerðu okkur gríðarlega erfitt fyrir að ná okkar spili, þeir voru kröftugir og þrýstu á okkur."
„Við náðum þessu marki þarna í byrjun þannig við vorum að verja það dálítið lengi. Þeir skora á okkur á 70.mínútu sirka og það fór dálítið um mann en við skorum úr hornspyrnu sem var mjög kærkomið og náðum að halda þetta út sem var alveg frábært."
Varnarleikur Gróttuliðsins var gríðarlega öflugur í dag var það eitt af uppleggjum Ágústar fyrir leikinn í kvöld?
„Nei í rauninni ekki. Þeir settu okkur dálítið útaf laginu með gríðarlega góðri pressu og þetta var erfið fæðing en það tókst."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.