Fotbolti.net
19.09.20 - 20:23
Ívan Guðjón Baldursson

Tökumaður GróttuTV ærðist: ERTU MORAN?

Tökumaður GróttuTV ærðist: ERTU MORAN?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
Grótta tapaði heimaleik gegn Keflavík í gær og var leikurinn sýndur beint á GróttaTV.
Tökumaðurinn er augljóslega stuðningsmaður Gróttu og var langt frá því að vera sáttur með sigurmark Keflvíkinga.

Hann heimtaði rangstæðu og öskraði af lífs og sálarkröftum en dómnum ekki snúið við, enda hárréttur og markið löglegt.

„HÚN VAR RANGSTÆÐ! HÚN VAR RANGSTÆÐ! HVAÐ ERTU AÐ PÆLA MAÐUR?" kallaði tökumaðurinn inn á völlinn.

„ERTU EKKI AÐ DÆMA? HVAÐ ERTU AÐ HUGSA? HVERNIG VAR ÞETTA EKKI RANGSTÆÐA? ERTU MORAN? HVERNIG GETURÐU EKKI SÉÐ AÐ ÞETTA SÉ RANGSTÆÐA MANNESKJA, ERTU MEÐ DÓMARAPRÓF?" hélt tökumaðurinn áfram, þó ekkert a sé í enska orðinu moron.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.