Sveinn Aron Guðjohnsen fékk að spila síðasta hálftímann er Spezia heimsótti Pescara í ítölsku Serie B deildinni.
Pescara var marki yfir þegar Sveini Aroni var skipt inn og lét hann strax til sín taka.
Hann lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Paolo Bartolomei og innsiglaði sigurinn sjálfur tveimur mínútum síðar.
Tækifærin hjá Spezia hafa verið af skornum skammti en hann skoraði líka síðast þegar hann fékk tækifæri, í 5-0 bikarsigri snemma í ágúst.
Pescara 1 - 2 Spezia
1-0 Pepin ('23)
1-1 P. Bartolomei ('69)
1-2 Sveinn Aron Guðjohnsen ('71)
Athugasemdir