Franski miðjumaðurinn N'golo Kante er talinn til allra bestu miðjumanna heims. Hann gerði garðinn frægan með Leicester og skipti yfir til Chelsea þar sem honum líður vel.
Hann hefur verið orðaður við Real Madrid að undanförnu en segist ekki gefa þeim orðrómum neinn gaum.
„Ég gæti klárað ferilinn hjá Chelsea. Eins og staðan er í dag er ég samningsbundinn félaginu til 2023. Ég vona að ég geti haldið áfram að eiga góð tímabil hjá Chelsea," sagði Kante í viðtali við Telefoot.
„Ég hef átt þrjú frábær ár hérna og unnið titla á hverju ári. Þetta er félag sem hefur hjálpað mér mikið og ég býst við að halda áfram að vinna titla hérna."
Athugasemdir