Fotbolti.net
20.02.21 - 18:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Henderson meiddur af velli - Sjáðu svipinn á Klopp

Henderson meiddist.

Henderson meiddist.

Canon

Mynd: Getty Images

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er farinn meiddur af velli í leik gegn Everton sem núna stendur yfir.
Henderson hefur verið að spila í stöðu miðvarðar síðustu vikur vegna meiðslavandræða í þeirri stöðu. Þessi meiðslavandræði virðasta engan endi ætla að taka.

Henderson fór í jörðina eftir að Abdoulaye Doucoure elti hann. Doucoure virtist ekki snerta hann. Henderson hélt aftan um læri sitt og leit þetta afar illa út.

Fyrirliði Liverpool reyndi að harka þetta af sér en gat það ekki. Það þurfti að skipta honum af velli fyrir Nathaniel Phillips.

Ben Davies, sem var fenginn frá Preston á síðasta gluggadegi, er á bekknum í dag en Phillips fékk kallið. Núna eru Ozan Kabak og Phillips að spila saman í hjarta varnarinnar hjá Englandsmeisturunum.

Virgil van Dijk, Joe Gomez, Joel Matip og Fabinho eru allir meiddir. Núna er Henderson kominn á meiðslalistann.

Hér að neðan má sjá svipinn á Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, þegar Henderson meiddist.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.