Gylfi Þór Sigurðsson, einn besti fótboltamaður sem komið hefur frá Íslandi, var á skotskónum þegar Everton vann útisigur á nágrönnum sínum í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta var fyrsti sigur Everton á Anfield frá 1999, í tæp 22 ár.
Þetta var fyrsti sigur Everton á Anfield frá 1999, í tæp 22 ár.
Gylfi kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.
Gylfi er núna búinn að skora fimm mörk gegn Liverpool á ferli sínum, þrjú í ensku úrvalsdeildinni og tvö í FA-bikarnum.
Öll fimm mörkin gegn Liverpool hefur Gylfi skorað á Anfield; eitt með Reading, tvö með Swansea og núna tvö með Everton. Hann er búinn að spila í 21 leik gegn stórveldinu og hefur hann verið í sigurliði í sex þeirra.
Nánari upplýsingar má finna á Transfermarkt.
Sjá einnig:
Sjáðu markið: Gylfi skoraði gegn Liverpool
Athugasemdir