Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. febrúar 2021 19:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Gylfi skoraði gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var að skora fyrir Everton gegn Liverpool á Anfield.

Staðan er 0-2 fyrir Everton eftir að Richarlison kom gestunum yfir í byrjun leiks.

Everton fékk vítaspyrnu eftir að bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold braut á Dominic Calvert-Lewin. Þetta var mikil óheppni hjá Alexander-Arnold en vítaspyrnan var dæmd.

Vítaspyrnan var ekki föst hjá Gylfa en hún var nákvæm. Alisson fór í rétt horn en náði ekki að verja.

Þetta er fjórða deildarmark Gylfa á leiktíðinni en hann kom inn á sem varamaður í leiknum í kvöld.

Hægt er að sjá markið og vítaspyrnudóminn hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner