BBC er tilbúið með allar helstu kjaftasögurnar úr slúðurblöðunum á Englandi. Njótið!
Manchester United hefur spurst fyrir um Philippe Coutinho (27) leikmann Barcelona en hann hefur verið á láni hjá Bayern Munchen í vetur. (Mundo Deportivo)
Manchester United er tilbúið að samþykkja 100 milljón punda tilboð í Paul Pogba (27) í sumar. Real Madrid og Juventus hafa áhuga. (Sun)
Chelsea vill fá Pierre-Emerick Aubameyang (30) frá Arsenal. (90min)
Atletico Madrid ætlar að framlengja samning sinn við Thomas Partey (26) út árið 2025 og hækka riftunarverðið í samningi hans upp í 92 milljónir punda. Arsenal og Manchester United hafa sýnt miðjumanninum áhuga. (Goal)
Miralem Pjanic (29) gæti farið frá Juventus í sumar en Manchester City og Chelsea hafa áhuga. (Sport Witness)
Gabriel Magalhaes (22) varnarmaður Lille (22) er á óskalista Everton. (Liverpool Echo)
Gianluigi Donnarumma (21) er á förum frá AC Milan en hann er á leið til PSG í Frakklandi. (Gazzetta dello Sport)
David Alaba (27) er að íhuga að fara frá Bayern Munchen í sumar en Real Madrid og Barcelona hafa bæði áhuga. (Sport Bild)
Manchester United er að íhuga að fá Eric Cantona (53) í hlutverk sem sendiherra félagsins. (Mirror)
Athugasemdir