Daníel Leó Grétarsson lék ekki með liði Blackpool í dag sem mætti Oxford Utd í ensku þriðju deildinni.
Daníel spilar flesta leiki Blackpool en hann hefur verið meiddur undanfarið og ekki tekið þátt.
Meiðsli voru þó ekki að angra Daníel í dag þegar Blackpool vann 2-0 útisigur á Oxford í mikilvægum leik.
Neil Critchley, stjóri Blackpool, staðfesti það eftir leik að Daníel hafi verið hjá eiginkonu sinni sem eignaðist stúlku.
Daníel og eiginkona hans voru að eignast sitt annað barn en fyrir áttu þau strák.
Daníel ætti að vera klár fyrir næsta leik gegn Peterborough. Blackpool er þremur stigum frá umspilssæti um sæti í næst efstu deild.
Til hamingju Daníel og fjölskylda!
Neil Critchley reveals Daniel Gretarsson would have been available today, but his partner gave birth to a baby girl yesterday.
— Matt Scrafton (@matt_scrafton) March 20, 2021
Congrats @danielgretarss!
Athugasemdir