Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. mars 2021 20:30
Victor Pálsson
Hákon Arnar skoraði fyrir U19 lið FCK
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn ungi Hákon Arnar Haraldsson lék með U19 liði FC Kaupmannahöfn í dag sem spilaði við Nordsjælland í Danmörku.

Hákon Arnar er fæddur árið 2003 en hann skoraði annað mark FCK í leik sem endaði með 2-2 jafntefli.

Þessi 17 ára gamli strákur kom til landsins fyrir tveimur árum en hann hafði fyrir það leikið með Kára og ÍA.

Varnarmaðurinn Valdemar Lund Jensen gerði fyrra mark FCK í jafnteflinu áður en Hákon Arnar bætti við öðru.

Hákon er fjölhæfur leikmaður og getur leyst stöðu hægri vængmanns sem og sóknarmanns.
Athugasemdir
banner
banner
banner