Fotbolti.net
20.03.23 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Araujo og De Jong ekki í landsliðsverkefni

Araujo og De Jong ekki í landsliðsverkefni
Canon

Mynd: EPA

Ronald Araujo og Frenkie De Jong leikmenn Barcelona meiddust báðir í viðureign liðsins gegn Real Madrid um helgina og fara því ekki í landsliðsverkefni í vikunni.

Araujo verður ekki með Úrúgvæ sem mætir Japan og Suður Kóreu í æfingaleikjum en hann átti góðan leik gegn Real þrátt fyrir að skora sjálfsmark.

Hann kláraði leikinn en sást kæla fótinn á sér eftir leikinn.

Barcelona hefur ekkert tjáð sig um De Jong en Ronald Koeman þjálfari hollenska landsliðsins staðfesti að hann ætti við náravandamál að stríða.

„Það er mikið áfall að Frenkie de Jong sé ekki leikfær. Hann er lykilmaður fyrir okkur. Hann er með hæfileika sem fáir aðrir hafa," sagði Koeman.

Holland mætir Frakklandi og Gíbraltar í undankeppni EM.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.