Fotbolti.net
20.04.21 - 19:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Forsætisráðherra bálreið - „Eigendurnir verða að ganga einir"

Forsætisráðherra bálreið - „Eigendurnir verða að ganga einir"
Canon

Mynd: Twitter

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, er mikill stuðningsmaður Liverpool. Hún er allt annað en sátt við Liverpool þegar kemur að Ofurdeildinni.

Nú þegar hafa ensku félögin Chelsea og Manchester City greint frá því að félögin ætli sér ekki að taka þátt í deildinni. Þau voru tvö af sex enskum félögum sem tóku þátt í áformunum um að stofna slíka deild.

Katrín tjáði sig á Twitter fyrir skemmstu: „Aðdáendur eru andi og hjarta allra íþrótta, þessi íþrótt er ekkert án þeirra," skrifaði Katrín.

„Þegar græðgi & kapítalismi taka algjörlega völdin þá er hjarta íþróttarinnar glatað. Ég mun ekki fylgja félaginu í þessari ferð, eigendurnir verða að ganga hana einir. #SuperLeagueOut

Ekkert hefur heyrst frá Liverpool í kjölfarið á fréttunum frá Chelsea og Manchester City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.