Fotbolti.net
20.05.19 - 22:20
Sverrir Örn Einarsson

Ólafur Stígs: Ekki verið nein skynsemi í því

Auglýsing
Ólafur Stígsson

Ólafur Stígsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir tapaði sínum öðrum leik í röð er liðið þurfti að lúta í gras gegn Grindavík í kvöld. Eftir ágætisbyrjun hefur Fylki aðeins fatast flugið og er nú í síðustu 4 leikjum.
„Þetta er mjög svekkjandi, svona heilt yfir var leikurinn bara mjög jafn en við fáum bara mark á okkur úr horni sofnum aðeins á verðinum en vorum búnir að fá gott færi og hefðum getað komist yfir," sagði Ólafur Stígsson, aðstoðarþjálfari Fylkis, eftir leikinn.

Ólafur Ingi Skúlason sat á bekk Fylkis eftir að hafa meiðst gegn Val. Var hann aldrei að fara að spila?

„Nei það hefði bara verið vitleysa að gera það, nóg af leikjum framundan, erfiður völlur svona þungur svo það hefði ekki verið nein skynsemi í því.“

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.