Fotbolti.net
20.05.21 - 21:40
Brynjar Ingi Erluson

3. deild: Þriðji sigur Hattar/Hugins í röð

Höttur/Huginn vann þriðja sigur sinn í röð

Höttur/Huginn vann þriðja sigur sinn í röð

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

<b>Höttur/Huginn 2 - 1 Einherji </b>
0-1 Heiðar Aðalbjörnsson ('1 )
1-1 Stefan Spasic ('27 )
2-1 Knut Erik Myklebust ('85 )
Höttur/Huginn lagði Einherja að velli, 2-1, er liðin mættust á Fellavelli í 3. deild karla í kvöld. Sigurmarkið kom þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Það voru gestirnir í Einherja sem komust yfir þegar innan við mínúta var liðin af leiknum en Heiðar Aðalbjörnsson gerði markið.

Stefan Spasic jafnaði metin á 27. mínútu. Staðan í hálfleik 1-1.

Þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma reyndist Knut Erik Myklebust hetja heimamanna. Lokatölur 2-1 en Höttur/Huginn er með þrjá sigra af þremur mögulegum á meðan Einherji er enn án stiga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.