Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. maí 2022 23:00
Victor Pálsson
Bale til Cardiff tikkar í öll box
Mynd: EPA

Robert Page, landsliðsþjálfari Wales, segir að það sé rökrétt skref fyrir Gareth Bale að semja við Cardiff City í Wales í næsta mánuði.


Bale mun yfirgefa lið Real Madrid í sumar og mun taka ákvörðun um framtíðina eftir leik Wales þann 5. júní sem ákveður hvort félagið fari á HM í Katar eða ekki.

Líklegt er að Bale leggi skóna á hilluna ef Wales kemst ekki í lokakeppnina en þarf nýtt lið ef liðinu tekst að sigra.

Cardiff í næst efstu deild Englands er líklegur áfangastaður Bale og væri Page mjög til í að sjá það skref eiga sér stað.

„Þetta tikkar í öll box. Að lokum er þetta ákvörðun Gareth og ákvörðun Cardiff City," sagði Page.

„Við getum haldið áfram að tala um þetta, giskað og haft okkar skoðun og það er vit í því, mikið vit. Hann getur æft á velli sem hann þekkir til."

„Við sjáum hvað gerist þann 5. júní og ég verð örugglega sá fyrsti til að spyrja hann að því eftir leikinn."


Athugasemdir
banner
banner
banner