Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
Vill breyta fyrirkomulaginu - „Höfum þetta eins og Bestu deildina“
Dragan brjálaður: Fokking pirrandi
„Við þurfum að hækka rána í frammistöðunni okkar“
Gunnar: Súrt að tapa á svona skítamarki
Chris Brazell: Ég er alls ekki aðal maðurinn á bakvið þennan sigur
Magnús Már: Það hellirignir
Haraldur Freyr: Við sigldum þessu heim
Elvis: Skotland öðruvísi en Vestmannaeyjar
Þjálfari St. Mirren: Fyrsti leikurinn á tímabilinu
Gummi Kristjáns: Við viljum bara meira
Haraldur Árni: Ég veit ekkert hvað hann er að gera hérna í dag
„Mér var bara orðið illt í maganum þegar þeir voru að taka þessar aukaspyrnur í kringum teiginn“
Árni: Gott fyrir klúbbinn að taka Breiðholtsslaginn
Jökull Elísabetar: Glórulaust en þýðir ekkert að væla yfir því
Dóri Árna: Það er eitt að sjá þá á videoum og annað að máta sig gegn þeim
Gunnar Heiðar í banni í Þjóðhátíðarleiknum: Fyrsta rauða spjaldið mitt á ævinni
Óli Hrannar: Við þurfum að spýta í lófana til þess að geta farið að sækja sigra aftur
Venni: Held það sé hræðilegt að tippa á þessa deild
Höskuldur: Ætlum okkur að kasta öllu fram til þess að fara áfram
Arnar Gunnlaugs: Verður bara að reyna að krafla þig úr þessari holu
   mán 20. maí 2024 17:13
Elvar Geir Magnússon
Hemmi Hreiðars: Oliver hefði frekar átt að fá víti en seinna gula
Lengjudeildin
Hermann Hreiðarsson tók aðeins á Birki Heimissyni eftir leik.
Hermann Hreiðarsson tók aðeins á Birki Heimissyni eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Þór gerðu 1-1 jafntefli í Lengjudeildinni í hörkuleik í dag.

„Við erum grautfúlir að taka ekki öll stigin, við vorum töluvert betri og getum sjálfum okkur um kennt að hafa ekki nýtt færin sem við fengum. Ég er gríðarlega stoltur af liðinu og hugarfarinu úti á vellinum. Við vorum ofar á flestum sviðum," segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV.

Eyjamenn voru manni fleiri og marki yfir þegar Oliver Heiðarsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 57. mínútu. Oliver lenti á Aroni markverði Þórs í baráttu um boltann við endalínuna.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 Þór

„Þetta var frekar víti sem við áttum að fá en gult á Oliver ef eitthvað er. Þetta er rándýrt. Hann er á undan í boltann og það má keppa um boltann, þetta er ekki rautt en hefði getað verið í víti. Það er dýrt að missa mann af velli og að hann sé í banni í næsta leik," segir Hermann sem vildi þó frekar ræða um frammistöðu sinna manna en dómgæsluna.

Smelltu hér til að sjá atvikið þegar Oliver fékk seinna gula.

Athugasemdir
banner
banner