Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 20. júlí 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Spurði Klopp um faðmlag á blaðamannafundi
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, fékk furðulega beiðni eftir æfingaleik Liverpool gegn Dortmund síðastliðna nótt.

Liverpool tapaði leiknum 3-2 og sat Klopp fyrir svörum á blaðamannafundi eftir leikinn. Hann svaraði spurningum um frammistöðu sinna manna, hvað þarf að bæta og svo framvegis.

Þegar blaðamannafundinum var að ljúka spurði einn fjölmiðlamaðurinn hvort hann mætti fá faðmlag frá Klopp.

„Ég fæ aldrei tækifæri til þess að spyrja þig að þessu aftur - mætti ég fá faðmlag?" spurði blaðamaðurinn sem var klæddur í Liverpool treyju.

Klopp varð auðvitað að þeirri beiðni og benti svo á það hversu mikil líkindi voru með þeim í útliti.

Þetta má allt saman sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner