Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
Bragi Karl: Var ekki í hlutverkinu sem ég vildi vera í
Ingi Þór: Engir grínleikmenn að spila í minni stöðu hjá ÍA
„Fór í viðræður við fullt af klúbbum"
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Þriðji hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
   sun 20. ágúst 2023 22:51
Haraldur Örn Haraldsson
Anton Søjberg: Mér finnst ég vera hluti af fjölskyldunni
Mynd: HK

Anton Søjberg skoraði bæði mörk HK í kvöld þegar liðið hans gerði 2-2 jafntefli við FH. Anton er danskur framherju en hann gekk til liðs við HK fyrr í mánuðinum.


Lestu um leikinn: HK 2 -  2 FH

„Tilfinningin er bitur. Þeir spiluðu vel en mér fannst við hafa möguleika á að skora eitt í viðbót. Svo erum við auðvitað frekar vonsviknir þegar litið er á hvernig leikurinn þróaðist. Við vorum yfir og það leit út eins og við myndum vinna þannig þetta eru svekkjandi úrslit."

HK var undir í baráttunni til að byrja með og á köflum leit þetta út fyrir að FH myndi vinna nokkuð sannfærandi. Það var hinsvegar eftir að HK skoraði jöfnunarmarkið að heimaliðið náði betri fótfestu í leiknum.

„Mér fannst þetta vera nákvæmlega það sem við þurftum. Við þurftum að finna eitthvað sjálfstraust og það hjálpaði okkur að spila betur, hafa betra vald á boltanum og skapa fleiri færi."

Mörkin sem Anton skoraði í dag eru fyrstu mörkin hans fyrir HK en þetta var aðeins annar byrjunarliðs leikurinn hans.

„Það er góð tilfinning að skora þessi mörk en ég hefði auðvitað vilja vinna leikinn líka. Það er gaman að skora og vonandi skora ég fullt af fleiri mörkum en tilfinningin er bitur þegar við vinnum ekki."

Anton fékk félagsskipti í HK fyrr í mánuðinum en hann segist vera mjög ánægður með að hafa gengið til liðsins.

„Mér finnst ég nú þegar vera hluti af fjölskyldunni, þeir hafa séð um mig mjög vel. Ég hefði ekki geta beðið um meira og ég hefði ekki getað gert það sem ég gerði í dag án þeirra. Sérstaklega þjálfararnir hafa tekið mjög vel á móti mér og þetta er einmitt það sem ég vonaðist eftir áður en ég kom." Anton minnist einmitt á að Ómar Ingi þjálfari liðsins hafi verið mikilvægur þáttur í hans ákvörðun að koma til HK. „Það var þjálfarinn (sem sannfærði mig) Ómar. Við áttum langt spjall um fótbolta og hann nokkurnvegin sannfærði mig um að koma hingað. Ég verð að segja að allt sem hann sagði hefur raungerst þannig að ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner