Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. september 2019 21:38
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Southampton og Bournemouth: King bestur
Mynd: Getty Images
Southampton tapaði fyrir Bournemouth á heimavelli fyrr í kvöld þrátt fyrir að vera í sókn stærstan hluta leiksins.

Vandamál Southampton var helst færasköpun og nýting þar sem liðið átti um 20 skot sem hittu ekki markrammann.

Angus Gunn markvörður var versti maður heimamanna ásamt miðverðinum Jan Bednarek. Báðir fá þeir 5 í einkunn frá Sky Sports ásamt Kevin Danso.

Joshua King var besti maður vallarins og fær hann 8 fyrir sinn þátt í sigrinum. Hann skoraði hvorki né lagði upp en var afar líflegur í sóknarleiknum og sinnti varnarvinnunni vel.

Harry og Callum Wilson fá báðir 7 í einkunn rétt eins og flestir leikmenn gestanna.

Southampton: Gunn (5), Cedric (6), Danso (5), Vestergaard (6), Bednarek (5), Hojbjerg (6), Ward-Prowse (7), Romeu (7), Boufal (7), Redmond (6), Adams (6).
Varamenn: Bertrand (6), Ings (6)

Bournemouth: Ramsdale (7), Rico (6), Stacey (7), S. Cook (8), Ake (7), Lerma (6), Billing (7), H. Wilson (7), King (8), Solanke (7), C. Wilson (7).
Varamenn: Fraser (6), L Cook (6), Surman (n/a).

Athugasemdir
banner
banner