HK/Víkingur 0 - 1 Þór/KA
0-1 Arna Sif Ásgrímsdóttir ('41)
0-1 Arna Sif Ásgrímsdóttir ('41)
Arna Sif Ásgrímsdóttir gerði eina mark leiksins er Þór/KA tryggði sér sigur í síðustu umferð tímabilsins í Pepsi Max-deild kvenna.
Eins og svo oft áður stökk Arna Sif hæst í hornspyrnu Akureyringa og stangaði knöttinn í netið. Hennar þriðja mark í sumar, síðasta sumar gerði hún fjögur.
Botnliði HK/Víkings tókst ekki að jafna í síðari hálfleik og verðskuldaður 0-1 sigur Þórs/KA staðreynd. Akureyri lýkur keppni í fjórða sæti Pepsi Max-deildarinnar.
Athugasemdir