Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 20. nóvember 2020 06:00
Victor Pálsson
Meistaradeild kvenna: Ingibjörg skoraði í stórsigri - Cloe komst áfram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cloe Lacasse, fyrrum leikmaður ÍBV, var í eldlínunni á miðvikudag þegar Benfica og Anderlecht áttust við í Meistaradield kvenna.

Leikurinn var mjög jafn á milli þessara liða en Cloe lék allan leikinn á vinstri vængnum er Benfica hafði betur 2-1.

Það voru heimastúlkur frá Belgíu sem komust yfir í seinni hálfleik en gestirnir svöruðu fljótt með tveimur mörkum og fara áfram.

Í gær komst svo hin íslenska Ingibjörg Sigurðardóttir áfram í næstu umferð keppninnar en hún er leikmaður Valerenga og fyrrum leikmaður Breiðabliks.

Ingibjörg skoraði fyrsta mark Valerenga í stórsigri á Gintra frá Litháen en norska liðið hafði sannfærandi betur, 0-7.

Ingibjörg aðeins fyrri hálfleikinn en lagði einnig upp þriðja mark liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner