Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. nóvember 2021 15:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bose bikarinn: Breiðablik valtaði yfir KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 5-1 KR

Öðrum leik dagsins í Bose bikarnum er lokið. Breiðablik valtaði yfir KR á Kópavogsvelli.

Gísli Eyjólfsson kom heimamönnum yfir og Davíð Ingvarson bætti öðru markinu við. Staðan 2-0 eftir 20 mínútna leik.

Viktor Karl Einarsson bætti þriðja markinu við áður en flautað var til hálfleiks. Viktor skoraði síðan sitt annað mark og fjórða mark Blika áður en Dagur Dan bætti fimmta markinu við.

Atli Sigurjónsson klóraði í bakkann fyrir KR þegar um 10 mínútur voru eftir. 5-1 lokatölur.
Athugasemdir
banner
banner