sun 21. febrúar 2021 21:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Belgía: Kolbeinn skoraði í sigri Lommel
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lommel 2 - 1 Lierse K.

Íslendingalið Lommel vann 2-1 heimasigur á Lierse í belgísku B-deildinni.

Kolbeinn Þórðarson var mættur aftur í byrjunarlið Lommel og jafnaði hann leikinn í 1-1 á 38. mínútu eftir undirbúning Marlos Moreno.

Sigurmark Lommel kom svo á 76. mínútu þegar Arno Verschueren kom boltanum í netið.

Kolbeinn lék í hægri bakverði í leiknum samkvæmt upplýsingum Flashscore. Lommel er í 3. sæti deildarinnar, stigi á eftir Seraing í 2. sætinu, sem á leik til góða. 2. sætið veitir þátttökurétt í efstu deild á komandi leiktíð líkt og toppsætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner