Marina Granovskaia hefur lengi verið hægri hönd Roman Abramovich, eiganda Chelsea, og stýrir bak við tjöldin hjá Lundúnafélaginu.
Hún hefur verið í stöðu framkvæmdastjóra síðan 2013 og er ekki mikið í sviðsljósinu, nema þegar kemur að því að taka myndir eftir undirskriftir. Hún kom til London 2003, þegar Abramovich keypti Chelsea.
Times hefur sagt hana vera valdamestu konu í fótboltaheiminum en hún sér um öll samningamál við leikmenn Chelsea.

Franska blaðið L'Equipe hefur kynnt sér þessa konu sem oft er talað um sem ákveðna „ráðgátu" í fótboltaheiminum.
Dregin er upp mynd af Granovskaia sem grjótharðri og menntaðri konu sem sé óhrædd við að láta umboðsmenn heyra það, þar á meðal Mino Raiola sem er einn valdamesti umboðsmaður heims.
Hún er sögð vinna á öllum mögulegum tímum sólarhringsins og notar mikið samskiptaforritið WhatsApp. Hún sé virkilega góð í mannlegum samskiptum, viðkunnanleg og með góðan húmor.
Granovskaia er bæði með rússneskan og kanadískan ríkisborgararétt og vann sem aðstoðarkona Abramovich hjá olíufyrirtækinu hans Sibneft árið 1997. Hér má lesa umfjöllun L'Equipe um Granovskaia.
Athugasemdir