Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 21. mars 2021 09:00
Victor Pálsson
Bannað að klæðast Juventus treyju Ronaldo heima
Mynd: Getty Images
Sonur miðjumannsins Allan má ekki klæðast treyju Juventus heima hjá sér en hann er mikill aðdáandi Cristiano Ronaldo, leikmanns liðsins.

Allan er fyrrum leikmaður Napoli og það andar ansi köldu á milli þessara félaga og hefur gert í mörg ár.

Sonur hans á margar Real Madrid treyjur með nafni Ronaldo en hefur ekki fengið leyfi til að fá sér eina ítalska.

„Þau eru miklir aðdáendur Cristiano Ronaldo svo hann hefur alltaf átt treyju Ronaldo," sagði Allan.

„Hann má hins vegar ekki klæðast treyju Juventus með nafni Ronaldo því þeir eru miklir erkifjendur Napoli. Það eru margar Real Madrid treyjur heima."

„Það er eðlilegt. Krökkunum dreymir alltaf um að skora mörk og líta upp til markaskorara, sonur minn er ekki frábrugðinn."
Athugasemdir
banner
banner