Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 21. mars 2021 14:05
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið West Ham og Arsenal: Auba og Laca byrja saman
Mynd: Getty Images
West Ham United tekur á móti Arsenal í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið staðfest.

Hamrarnir eru óvænt í baráttu um Meistaradeildarsæti á lokaspretti tímabilsins, heilum sjö stigum fyrir ofan Arsenal.

David Moyes gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði gegn Manchester United í síðustu umferð. Jesse Lingard og Said Benrahma koma inn í byrjunarliðið fyrir Ben Johnson og Mark Noble.

Pierre-Emerick Aubameyang byrjar fremstur í liði Arsenal og er hann einn af þremur leikmönnum sem koma inn í liðið eftir sigurinn gegn Tottenham um síðustu helgi.

Calum Chambers og Pablo Mari koma þá inn í varnarlínuna fyrir Cedric Soares og Gabriel Magalhaes.

West Ham: Fabianski, Cresswell, Coufal, Diop, Dawson, Rice, Soucek, Bowen, Lingard, Benrahma, Antonio.
Varamenn: Martin, Trott, Balbuena, Lanzini, Ibsen, Noble, Fredericks, Johnson, Odubeko.

Arsenal: Leno, Tierney, Mari, Chambers, Luiz, Partey, Xhaka, Saka, Odegaard, Aubameyang, Lacazette.
Varamenn: Ryan, Gabriel, Holding, Ceballos, Cedric, Pepe, Elneny, Smith Rowe, Martinelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner