Sumir stuðningsmenn Newcastle vilja sjá Steve Bruce yfirgefa félagið og það strax eftir slæmt gengi undanfarið.
Newcastle er nú í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni eftir 3-0 tap gegn Brighton í gær.
Gengið hefur ekki verið til fyrirmyndar á leiktíðinni og er spilamennskan oft afar slök þessa dagana.
Það var borði mættur fyrir utan St. James' Park í gær þar sem stuðningsmenn Newcastle kölluðu Bruce heigul og sögðu honum að fara.
Möguleiki er á að Newcastle reki Bruce ef gengið batnar ekki en félagið má alls ekki falla niður í næst efstu deild.
Steve Bruce: Accumulation of losses pic.twitter.com/imTqL1zvBI
— Wor Flags 🏴🏳 (@worflags) March 20, 2021
Athugasemdir