Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. mars 2021 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Skoraði nánast frá miðju í Lengjubikarnum
Frá Ásvöllum í Hafnarfirði. Þar var markið skorað.
Frá Ásvöllum í Hafnarfirði. Þar var markið skorað.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Haukar fóru með sigur af hólmi gegn KFG í Lengjubikar karla síðastliðinn föstudag.

Garðbæingar tóku forystuna eftir korter þegar Pétur Máni Þorkelsson skoraði beint úr aukaspyrnu nánast frá miðjum vellinum. Hann setti boltann yfir Hlyn Örn Hlöðversson í marki Hauka.

Það er spurning hvort Pétur hafi ætlað sér þetta en ef hann er spurður út í það, þá mun hann örugglega segja að hann hafi alltaf ætlað sér að skjóta á markið úr þessari stöðu.

Haukar svöruðu markinu vel og komust í 5-1. Lokatölur í leiknum voru 5-3 fyrir Hauka.

Öll mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Næst besta mark leiksins skoraði Gísli Þröstur Kristjánsson en það var fjórða mark Hauka.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner