Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 21. mars 2021 07:00
Victor Pálsson
Tielemans hæstánægður hjá Leicester
Mynd: Getty Images
Youri Tielemans hefur gefið í skyn að hann gæti framlengt samning sinn við Leicester en hann kom frá Monaco í janúar 2019.

Mörg stórlið eru oft orðuð við Tielemans sem er 23 ára gamall og á framtíðina fyrir sér.

Belginn er þó afar ánægður á King Power og gæti vel endað á að skrifa undir til lengri tíma. Hann er bundinn til ársins 2023.

„Þegar ég kom til Leicester þá gekk þetta allt vel og hratt fyrir sig. Liðið var að spila vel og við gerðum hvorn annan betri," sagði Tielemans.

„Það útskýrir hvers vegna vel gengur í dag og ég skemmti mér konunglega. Mér líður mjög þægilega í þessu liði."

„Þetta er allt þægilegt og það sést á vellinum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner