Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. apríl 2021 16:22
Elvar Geir Magnússon
Barcelona býður Aguero tveggja ára samning
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Barcelona mun bjóða Sergio Aguero tveggja ára samning en Argentínumaðurinn yfirgefur Manchester City þegar samningur hans rennur út í sumar.

Sagt er að Lionel Messi vilji ólmur fá Aguero til Börsunga og að koma hans myndi virka sem hvatning fyrir Messi að skrifa undir nýjan samning.

Argentínskir fjölmiðlar segja að Börsungar hafi fundað með umboðsmönnum Aguero og hann muni fá samningstilboð til sumarsins 2023.

Talið er að Juventus muni líka reyna að fá hinn 32 ára Aguero en ítalska félagið ætti að geta boðið honum hærri samning en Börsungar.
Athugasemdir
banner
banner
banner