Guardiola um Aguero: Eins og ljón í frumskóginum

Sergio Aguero hefur átt frábæran feril.

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero hefur átt frábæran feril.

Mynd: Getty Images
Sergio Aguero, markahæsti leikmaður Manchester City frá upphafi, spilar sinn síðasta leik fyrir City á Etihad vellinum á sunnudag þegar liðið mætir Everton.
Búist er við því að Aguero, sem verður samningslaus í sumar, muni semja við Barcelona. Hann er síðasti leikmaðurinn í hópnum hjá City sem var með 2012 þegar þeir ljósbláu unnu ensku úrvalsdeildina.
<i>„Þegar hann er heill þá er hann eins og Romario hjá Brasilíu. Á fimm metra svæði er hann eins og ljón í frumskóginum. Hann er svo snöggur og með gæði til að skapa mark,"</i> segir Pep Guardiola, stjóri Manchester City. <i>„Meðan hann spilar þá skorar hann mörk."</i>

„Hann er ótrúlegur. Hann er auðmjúkur miðað við að vera þessi goðsögn sem hann er. Hann er elskaður af starfsliðinu því hann er svo góður einstaklingur og gæðaleikmaður."