Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vestri spilar fyrsta heimaleikinn í Evrópu í Laugardal
Evrópuleikur á AVIS.
Evrópuleikur á AVIS.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri tekur þátt í forkeppni Evrópudeildarinnar í sumar sem ríkjandi bikarmeistari. Fari svo að liðið detti út í Evrópudeildinni mun liðið færast niður í forkeppni Sambandsdeildarinnar, svo liðið mun að lágmarki spila fjóra Evrópuleiki í sumar.

Kerecisvöllurinn á Ísafirði uppfyllir ekki kröfur fyrir leik í forkeppni Evrópudeildarinnar og munu Vestramenn því spila heimaleik sinn á AVIS-vellinum í Laugardal - á heimavelli Þróttara.

Vestri vonast til að fá spila heimaleik á Ísafirði í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Þann 16. júní kemur í ljós hvaða liði Vestri mætir í forkeppni Evrópudeildarinnar. Leikirnir verða svo spilaðir 9. júlí og 16. júlí.

Liðin sem taka þátt í 1. umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni
Hajduk Split (Króatía), Vojvodina (Serbía), Dynamo Kiev (Úkraína bikarmeistari), Ferencvaros (Ungverjaland bikarmeistari), Universitatea Cluj (Rúmenía), Zilina (Slóvakía bikarmeistari), Aluminij (Slóvenía bikarmeistari), CSKA Sofia (Búlgaría bikarmeistari), Qarabag (Aserbaísjan), Derry City (Írland), Bikarmeistarar Moldavíu* og Vestri (Ísland bikarmeistari).

*23. maí kemur í ljós hvaða lið verður í pottinum frá Moldavíu.
Slapp
banner