Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. júní 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carlos Vela: Ég er opinn fyrir því að fara
Carlos Vela.
Carlos Vela.
Mynd: Getty Images
Mexíkóski landsliðsmaðurinn Carlos Vela er mögulega á förum frá Los Angeles FC í sumar. Hann segist vera opinn fyrir því að fara.

Vela, sem er 33 ára, átti fínan feril í Evrópu með félögum á borð við Arsenal og Real Sociedad áður en hann ákvað að fara til LAFC fyrir fjórum árum. Þar hefur hann verið aðalmaðurinn undanfarin ár.

Samningur Vela er að renna út og hann hefur ekki náð samkomulagi við félagð um nýjan samning.

„Ég er opinn fyrir því að vera hérna en ef þetta gengur ekki upp, þá er ég líka opinn fyrir því að fara annað og prófa eitthvað nýtt,” sagði Vela.

„Við sjáum hvort við náum að útbúa nýjan samning eða ekki.”
Athugasemdir
banner
banner
banner