Fotbolti.net
21.07.18 - 16:41
Ívan Guðjón Baldursson

Óli Guðbjörns: Harpa var afgerandi

Auglýsing
Óli Guðbjörns: Harpa var afgerandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Stjarnan skoraði níu mörk á útivelli gegn Fylki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í dag.
Ólafur Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna og er spenntur fyrir úrslitaleiknum.

„Þessi leikur var hálfgert furðudýr í raun og veru. Það var smá bras í byrjun og þær byrja á því að skora, síðan tókum við allt vald á vellinum. Þetta var sannfærandi og öruggur sigur og er ég mjög ánægður með mitt lið,\" sagði Óli.

Harpa setti fernu í leiknum og er Óli sammála fréttamanni um að hæfileikar hennar hafi verið afdrifaríkir í leiknum.

„Hún tók á skarið, það er gott þegar menn stíga svona upp. Við höfum fína sóknarlínu og þetta var liðsheildin í dag sem kláraði þetta, en Harpa var afgerandi, við getum alveg sagt það.\"

Óli segir það ekki skipta neinu máli hvort Stjarnan mæti Val eða Breiðablik í úrslitaleiknum.

„Það verður bara gaman á Laugardalsvelli eins og áður. Okkur líður vel þar og okkur langar að ná í þennan bikar sem er í boði.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.