Það verða KR og Selfoss sem mætast í úrslitum Mjólkurbikars kvenna þetta árið.
Selfoss vann á föstudag 1-0 sigur gegn Fylki í Árbæ. Grace Rapp skoraði eina mark leiksins þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.
Búið er að birta myndband af markinu og helstu atvikum leiksins á vef Vísis. Þau má sjá hér að neðan.
Í leik KR og Þórs/KA kom Ásdís Karen Halldórsdóttir KR-ingum yfir þegar lítið var búið af seinni hálfleik. Betsy Hassett innsiglaði sigurinn á 83. mínútu.
Mörkin úr leiknum voru birt á vef Vísis og má sjá þau hér að neðan.
Smelltu hér til að lesa meira um leik Fylkis og Selfoss.
Smelltu hér til að lesa meira um leik Þórs/KA og KR.
Athugasemdir