PSV Eindhoven rúllaði yfir Galatasaray í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Hollendingarnir gerðu sér lítið fyrir og skoruðu fimm mörk á heimavelli gegn tyrkneska stórveldinu.
Eran Zahavi og Mario Götze skiptu mörkunum fimm á milli sín, Zahavi setti þrennu og Götze tvennu.
PSV 5 - 1 Galatasaray
1-0 Eran Zahavi ('2)
2-0 Eran Zahavi ('35)
2-1 Emre Kilinc ('42)
3-1 Mario Götze ('51)
4-1 Eran Zahavi ('84)
5-1 Mario Götze ('88)
Ögmundur Kristinsson sat þá allan tímann á bekknum er Olympiakos lagði Neftci Baku að velli.
Olympiakos missti mann af velli undir lok fyrri hálfleiks og misstu gestirnir svo einnig mann útaf með rautt spjald í síðari hálfleik.
Gestirnir voru hættulegri en skoruðu ekki og staðan því 1-0 fyrir Olympiakos fyrir seinni leikinn í Aserbaídsjan.
Olympiakos 1 - 0 Neftci Baku
1-0 M. Camara ('29)
Rautt spjald: M. Camara, Olympiakos ('43)
Rautt spjald: M. Celik, Neftci Baku ('63)
Athugasemdir