Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. júlí 2022 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
EM kvenna: Þýskaland í undanúrslit
Mynd: EPA
Germany W 2 - 0 Austria W
1-0 Lina Magull ('25 )
2-0 Alexandra Popp ('90 )

Þýskaland er komið áfram í undanúrslit á EM kvenna eftir sigur á Austurríki í kvöld.

Þjóðverjar komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn en þar var að verki Lina Magull. Þýska liðið var sterkara í fyrri hálfleiknum en náði ekki að bæta við marki.

Það var ekki fyrr en í uppbótartíma í síðari hálfleik að liðið náði að tvöfalda forystuna en það var eftir slæm mistök markvarðar Austurríkis. Alexandra Popp komst fyrir útspark og fékk boltann í sig og hann endaði í netinu.

Þýska liðið mætir sigurvegara úr leik Frakklands og Hollands sem mætast á Laugardaginn.


Athugasemdir
banner
banner