Fotbolti.net
21.08.23 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lovro Majer þriðji dýrasti í sögu Wolfsburg (Staðfest)

Majer er hugsaður sem arftaki Luka Modric í króatíska landsliðinu.

Majer er hugsaður sem arftaki Luka Modric í króatíska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Króatíski miðjumaðurinn Lovro Majer er orðinn þriðji dýrasti leikmaður í sögu þýska félagsins Wolfsburg eftir að félagið keypti hann fyrir rúmlega 25 milljónir evra.

Majer gæti orðið næstdýrasti leikmaður Wolfsburg þegar árangurstengdar aukagreiðslur eru teknar með í myndina, en leikmaðurinn kemur úr röðum Rennes í Frakklandi.

Majer er 25 ára gamall með 22 landsleiki að baki fyrir sterkt landslið Króatíu. Hann var mikilvægur hlekkur í liði Rennes og kom í heildina að 25 mörkum í 79 leikjum fyrir félagið.

Wolfsburg endaði í áttunda sæti þýsku deildarinnar á síðustu leiktíð og rétt missti af Evrópusæti. Markmiðið er að ná Evrópusæti á nýju tímabili og er félagið þegar búið að krækja í fleiri leikmenn á borð við Rogério, Tiago Tomás og Vaclav Cerny í sumar.

Sjá einnig:
Rogerio, Tomas og Cerny til Wolfsburg (Staðfest)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.