Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 21. september 2021 21:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Þórir Jóhann byrjaði í sigri - Inter á toppinn
Þórir Jóhann Helgason.
Þórir Jóhann Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dzeko skoraði fyrir Inter.
Dzeko skoraði fyrir Inter.
Mynd: EPA
Landsliðsmaðurinn Þórir Jóhann Helgason byrjaði og spilaði 70 mínútur þegar Lecce vann 0-3 sigur Crotone í ítölsku B-deildinni í kvöld.

Þetta er annar leikurinn sem Þórir byrjar í ítölsku B-deildinni. Varnarmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason var í dag ónotaður varamaður fyrir Lecce, sem er í níunda sæti deildarinnar með átta stig.

Það vorur þrír leikir í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Inter skellti sér á toppinn í deildinni með útisgri gegn Fiorentina. Inter, sem missti góða menn frá sér í sumar, lenti undir en kom til baka í seinni hálfleiknum.

Þá vann Atalanta 2-1 sigur á Sassuolo og Bologna og Genoa gerðu 2-2 jafntefli.

Atalanta 2 - 1 Sassuolo
1-0 Robin Gosens ('3 )
2-0 Davide Zappacosta ('37 )
2-1 Domenico Berardi ('44 )

Bologna 2 - 2 Genoa
1-0 Aaron Hickey ('49 )
1-1 Mattia Destro ('55 )
2-1 Marko Arnautovic ('85 , víti)
2-2 Domenico Criscito ('89 , víti)

Fiorentina 1 - 3 Inter
1-0 Riccardo Sottil ('23 )
1-1 Matteo Darmian ('52 )
1-2 Edin Dzeko ('55 )
1-3 Ivan Perisic ('87 )
Rautt spjald: Nicolas Gonzalez, Fiorentina ('78)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner