Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 21. september 2021 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klara mætt aftur til vinnu hjá KSÍ - Tveir faghópar tekið til starfa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ.
Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á storminum sem átti sér í stað í kringum sambandið um síðustu mánaðarmót.

KSÍ vill að það verði sett á stofn nefnd til að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. Tveir faghópar hafa þegar tekið til starfa hjá ÍSÍ og KSÍ sem hafa það hlutverk að skoða ferla, vinnubrögð og heimildir til aðgerða hjá samböndunum í tengslum við kynferðisbrotamál.

Þá kemur fram að Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri sé mætt aftur til starfa eftir leyfi en hún vinnur að undirbúningi aukaþings KSÍ sem verður í byrjun október.

Yfirlýsing KSÍ
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) hefur farið þess á leit við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) að sett verði á stofn nefnd til að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. Nefndinni er ætlað að fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og stjórnar KSÍ og bregðast við ásökunum um þöggun. Þá á nefndin að taka sérstaklega til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Þetta er gert í tengslum við fullyrðingar sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi fyrir konur. Í því sambandi verður skoðað hvort skipulag KSÍ eða aðrir þættir í starfseminni séu hamlandi fyrir þátttöku kvenna í starfinu.

Knattspyrnusambandið ítrekar afsökunarbeiðni sína til þolenda og heitir því að vinna ótrautt að því að bæta menningu og starfsanda innan hreyfingarinnar. KSÍ vill laga starfshætti sína að kröfum tímans um viðbrögð við kynferðisofbeldi. Í þessu skyni hefur verið leitað til sérfræðinga og ráðgjafa til að aðstoða hreyfinguna við að vinna að úrbótum til framtíðar og bæta samskipti og upplýsingaflæði til samfélagsins. Stjórn mun leitast eftir að upplýsa um framgang mála fram að aukaþingi.

KSÍ fordæmir ofbeldi af öllu tagi. Knattspyrnusambandið er að bæta afgreiðslu ofbeldismála og tryggja að þau fari í réttan farveg hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs eða lögreglu. Mikilvægt er að skapa aðstæður til að gera raunverulegar úrbætur í takti við þá ráðgjöf sem KSÍ hefur fengið og að upplýst sé jafnóðum um þau skref sem stigin eru.

Helstu atriði:

*Tveir faghópar hafa þegar tekið til starfa hjá ÍSÍ og KSÍ sem hafa það hlutverk að skoða ferla, vinnubrögð og heimildir til aðgerða hjá samböndunum. Hægt verður að ráðast í breytingar á grundvelli þeirra niðurstaðna.

*KSÍ ætlar að bæta upplýsingagjöf innan hreyfingarinnar og til almennings og fjölmiðla. Fráfarandi stjórn og starfsmenn hafa óskað eftir ráðgjöf frá samskiptafélaginu Aton.JL fram að aukaþingi.

*Fundargerðir frá fundum sem leiddu til afsagnar formanns og síðar stjórnar eru nú aðgengilegar á vefsvæði KSÍ. Smellið hér til að skoða fundargerðir. Töf varð á birtingu fundargerða vegna óvenjulegra kringumstæðna, þar sem formaður hafði látið af störfum og framkvæmdastjóri var í tímabundnu leyfi.

*KSÍ mun veita nefnd ÍSÍ öll gögn sem óskað er eftir.

*Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs Knattspyrnusambandsins rennur út 25. september.

*Landsliðshópur A landsliðs karla fyrir októberverkefnin verður tilkynntur 30. september.

*KSÍ heldur aukaþing sitt 2. október og hefur Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri, snúið til baka úr leyfi til að undirbúa það.
Eðli málsins samkvæmt vilja fjölmiðlar og aðrir spyrja margra spurninga. Starfsmenn og fráfarandi stjórn KSÍ munu leitast við að svara þeim eftir bestu getu fram að aukaþingi. Þó er ljóst að einhver mál skýrast ekki fyrr en ný stjórn tekur til starfa.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Smárason hjá KSÍ ([email protected]).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner