Fotbolti.net
21.09.21 - 20:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Myndi kaupa Sterling bæði til Liverpool og Man Utd

Raheem Sterling.

Raheem Sterling.

Canon

Mynd: Getty Images

Rio Ferdinand, fyrrum varnarmaður Manchester United, finnst að bæði Liverpool og Manchester United ættu að hugsa um að kaupa Raheem Sterling frá Manchester City.
Enski landsliðsmaðurinn hefur verið lykilmaður hjá Man City síðustu ár, en hefur ekki verið í mjög stóru hlutverki í byrjun þessa tímabils.

Ferdinand telur að Sterling muni biðja um félagaskipti ef staðan batnar ekki.

„Ef ég væri að stjórna hjá Liverpool, þá myndi ég kaupa Sterling á morgun... Man Utd ætti líka að hugsa um að taka hann," sagði Ferdinand í hlaðvarpi sínu.

Ferdinand er mjög hrifinn af Sterlingu og skilur ekki af hverju hann er ekki í lykilhlutverki hjá Pep Guardiola núna.

Sterling spilaði með Liverpool áður en hann fór til Man City og það er spurning hvernig stuðningsmenn félagsins myndu taka í það ef hann yrði keyptur aftur til félagsins.
Rio Ferdinand.

Rio Ferdinand.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.