Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ótrúleg tölfræði Ronaldo í Meistaradeildinni - Unnið 114 leiki
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: EPA
Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo vann 114. Meistaradeildarleik sinn á ferlinum er Manchester United vann Atalanta 3-2 í F-riðlinum í gær.

Ronaldo hefur spilað 178 leiki í Meistaradeildinni á ferli sínum og unnið 114 þeirra.

Hann hefur unnið fleiri leiki í Meistaradeildinni heldur en Chelsea, Juventus, Milan og Liverpool svo einhver lið séu nefnd.

Transfermarkt gerði topp tíu lista og sýnir þar að Ronaldo er í fimmta sæti yfir flesta sigra í Meistaradeildinni, sem er ótrúlegt afrek, en allir þessir sigrar komu með United, Real Madrid og Juventus

Hann er þá bæði leikja- og markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar frá upphafi. Hann hefur spilað 178 leiki og skorað 137 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner